Þetta hannar sig ekki sjálft! Annar hluti

Rosa gaman að vera í bústað með vinum sínum að gera heimasíðu, það vantar ekki.

Ég hef líka verið að hugleiða hvernig ég geri þetta og af hverju. Hef komist að því að þetta er alger leikur, alveg eins og þegar ég var að teikna eða búa til hitt og þetta úr Lego þegar ég var yngri, sköpunargleði. Ég elska að fara niður í smáatriðin og nudda og nudda, sér í lagi letrið. Týpógrafía eru mínar ær & kýr.

Enda með að sýna ykkur enn eitt æsispennandi myndband af gerð kosmos amp; kaos heimasíðunnar, elska líka að segja heimasíða, það er svo kósý eitthvað.

Grunnur að leitarvélabestun og vefmælingum

Grunnur að tjekklista fyrir leitarvélabestun og vefmælingar.

Hvernig lýst ykkur á þetta?

Google Titill og lýsing Grunnur að leitarvélabestun og vefmælingum

 

Vefurinn í sveitinni

Sæl öll sömul.

Nú er hluti af genginu mættur í Gnúpverjahrepp til að klára vef fyrir okkur sjálf og engan annan. Í gærkvöldi komum við okkur fyrir og gerðum plan fyrir hvernig við vinnum og hvernig síðu okkur langar að gera.

Við veltum mikið fyrir okkur fyrir hvern síðan á að vara. Umræðurnar snérust mikið um hvað við höfum gert vel, hver er markhópurinn. Hvað höfum við gert sem hefur vakið jákvæð viðbrögð og hvernig við komum hugsjónum okkur um versíðugerð og markaðssetningu til skila á vefsíðunni.

Knarrarholt Gnúpverjahreppi 1024x679 Vefurinn í sveitinni

Hér eru nokkrir punktar sem við erum að vinna með:

  • Hvernig gerum við hlutina öðruvísi en hinir?
  • Við viljum hjálpa fyrirtækjum að fóta sig á Internetinu með uppbyggilegri gagnrýni.
  • Okkur langar ekki að setja vefsíður eða þekkingu okkar í pakka sem við getum selt. Vefsíðugerð, hugmyndavinna og hönnun er bara ekki þannig ef þú vilt ná árangri með okkur.
  • Vefsiða hefur ekki byrjun og enda.
  • Við þurfum að hittast og kynnast til að geta unnið saman.

Öll ummæli eru hjartanlega velkomin.